19.8.2007 | 00:08
Loksins, loksins!
Loksins, loksins! Ég hef lengi ætlað að byrja að blogga. Það er góð tilfinning að vera kominn af stað. Internetið er ótrúlegt. Hér hef ég mitt eigið málgagn, minn eigin prédikunarstól þar sem ég get komið viðhorfum mínum á framfæri. Hér get ég samhæft reynslu mína, styrk og vonir við reynslu þeirra sem nenna að lesa. Ég hef gaman af að lesa blogg annars fólks, þ.e.a.s. sumra.
Í sumar hef ég verið að prófa nýja hluti, - gera nýja hluti sem ég aldrei gert áður. T.d. fór ég í fyrsta sinn í sólarlandaferð til Fuerteventura, sem er ein af Kanaríeyjunum, með fjölskyldu minni, eiginkonu og börnum. Það höfðum við aldrei gert áður og mér fannst það merkileg og góð reynsla.
Ég gerði það líka í fyrsa sinn í sumar að vakna klukkan sex að morgni í erlendri stórborg, - Köln, - fara í stuttbuxur, hlaupaskó og bol og hlaupa síðan 5 kílómetra í morgunrigningunni ásamt þúsundum manna frá flestum Evrópulöndum. Hlaupið var til styrktar fátækum börnum og var á vegum Herbalife Family Foundation. Það var í tengslum við átján þúsund manna Herbalife Extravaganza ráðstefnu sem haldin var í Köln. Þetta morgunhlaup á Rínarbökkum og yfir báðar brýrnar hjá miðbæ Kölnar fannst mér einstaklega skemmtileg og uppbyggileg reynsla.
Að byrja að blogga er það þriðja markverða sem ég geri í fyrsta sinn á þessu sumri. Efri myndin sem ég birti með þessari færslu er af mér börnunumm mínum á Fuerteventura í sumar. Konan mín tók myndina. Síðari myndin er tekin í Köln, á annarri brúnni yfir Rín. Kölnardómkirkja sérst í fjarska hinum megin við ána.
Um bloggið
Betra er að kveikja ljós en formæla myrkrinu.
Færsluflokkar
Tenglar
Vefsíður.
Heimasíða mín.
- Facebook síðan mín Hafðu endilega samband við mig á Facebook. Ýttu á slóðina.
- Vefsíða Skálholtsprestakalls
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.